Tuesday, December 05, 2006

Öðruvísi dagar..-

Huh.. dagurinn í dag og dagurinn í gær voru öðruvísi. Ekki endilega öðruvísi en dagarnir þar á undan, eða dagarnir sem eru handan við hornið, en samt öðruvísi. Ég á í skrýtnu sambandi við sjálfa mig þessa dagana. Pínulítið svona haltu mér/slepptu mér sambandi, sem allajafna væri fullkomlega eðlilegt fyrir manneskju eins og mig, en þegar ég og aðeins ég á í hlut, þá ruglast kerfið og mig vantar jafnvægi. Mér finnst ég vera eftir á, einu skrefi á eftir. Ohh, ég þoli ekki að kunna ekki reglurnar!

Ég man ennþá daginn eins og hann hafi verið í gær, hann var öðruvísi. Hann var öðruvísi afþví að þetta var dagurinn sem ég dó. Kannski ýkti ég örlítið, því ég man tilfinninguna og atburðarrásina skýrt, en annað er eins og í móðu. Ég man sársaukann, en finn hann ekki lengur. Ég man skelfinguna, en aðeins sem óljósa minningu.

Ég var á leiðinni eitthvert, ég reyni eins og get að muna það, á hverjum degi.. en það eina sem ég man er tilhlökkun. Ég held ég hafi verið að fylgja hjartanu. Krókaleiðir örugglega.
Þegar maður áttar sig á því að stundin sé komin, að nú sé lífið að enda, þá er eins og allt stoppi. Ég upplifði síðustu sekúndurnar eins og klukkustundir. Ég horfði á bílinn keyra í áttina að mér, hægt. Ég huxaðu um mömmu, sem ég hafði ekki talað við í fleiri daga. Sársaukinn byrjaði þar, innra með mér. Söknuðurinn varð svo sár að ég óskaði þess að tíminn liði hraðar og að bíllinn keyrði mig niður samstundis. Ég huxaði til systra minna, og það rifjuðust upp fyrir mér gamlar minningar sem voru að ég hélt löngu horfnar. Þegar mamma var ólétt að Amöndu, og við Hulda rifumst um það hvor okkar ætti meira í henni. Þegar við ákváðum að þegar við yrðum stórar skildum við allar búa saman í stóru húsi með sundlaug og "plat-kærustum".

Ég lokaði augunum og bað til Guðs um að enda kvölina, sleppa af mér takinu. Ég féll á hnén og horfðist í augu við eigin skelfingu þegar bílljósin skinu beint í augun á mér. Ég huxaði með skömm til þess að ég hafði ekki tekið til heima, nú þyrfti einhver að fara í gegnum draslið mitt og óhreina þvottinn. Rúmið var óumbúið. Skítugt leirtau í vaskinum.

Loksins, loksins, heyrði ég ískrið í dekkjunum og öskrin í vegfarendum. Ég velti því fyrir mér afhverju enginn hafði stokkið til hjálpar, afhverju enginn hafði rifið mig uppúr doðanum sem hélt mér fanginni- fastri í tímaleysi.

Ég fann strax fyrir frelsinu, ég sveif upp frá líkamanum og horfði niður á eigin sjálf. Bílstjórinn sat ennþá stjarfur inn í bílnum, eldri maður sem hafði aldrei lent í minnsta tjóni áður. Hann var nýbúinn að missa konuna sína úr krabbameini og var á leið heim frá því að vitja hennar í kirkjugarðinum. Hann átti einn son, sem var búsettur erlendis með eiginmanni sínum. Þeir höfðu ekki talað saman í tæp tíu ár, eða ekki frá því að sonur hans játaði fyrir honum að hann væri samkynhneigður. Ég veit ekki hvernig ég vissi þetta, en upplýsingaflæðið var svo mikið að mig verkjaði í hausinn. Þrátt fyrir allar huxanirnar, allar samhengislausu huxanirnar var ein sem var þeim öllum yfirsterkari- mamma.

Skyndilega var eins og rifið í mig, ég gaf frá mér óp og reyndi að berjast á móti en það var ekkert sem ég gat gert. Það síðasta sem ég sá, var gamli maðurinn grátandi með blóði drifinn líkama minn í fanginu. Ég fann svo ótrúlega, ótrúlega mikið til með honum. Ég teygði fram hendina í lélegri tilraun til að taka sorg hans og eftirsjá með mér. Eitt augnablik fannst mér hann horfa beint á mig. Í undrun hætti ég að berjast á móti þessu afli sem togaði í mig og leyfði mér að fljóta.

Ég fann vindana blása, en fann ekki til kulda. Ég sá tré og fjöll þjóta framhjá, en í stað ótta fann ég til gleði. Þegar hægði á, sá ég að ég var komin heim til mömmu, kannski er það rétt sem sagt er að hugurinn beri mann hálfa leið? Söknuðurinn og þráin eftir henni var dauðanum sterkari og hugurinn flutti mig til hennar. Aðeins mínútu eftir að hjartað mitt hætti að slá var ég komin inn í eldhús til mömmu. Ég fylgdist með henni hella sér kaffi í bolla og snúa sér hægt við. Hún starði lengi í áttina að mér, blikkaði ekki. Ég fylgdist með henni fölna upp áður en hún sleppti takinu á bollanum sem brotnaði í mél á gólfinu. Það voru kaffislettur útum allt, en henni virtist sama. Hún greip um brjóstið á sér og barðist við að ná andanum.

Ég hljóp til hennar og reyndi að segja henni að það væri allt í lagi með mig, en hún hvorki heyrði í mér né sá. Ég strauk henni um vangann, en hún hryllti sig eins og skyndilegur kuldi hefði breitt um sig innra með henni. Hún lét sig falla á stól og starði fram fyrir sig í þögn. Ég kraup við hliðina á henni og hvíldi höfuðið í kjöltunni á henni, en hún fann það ekki. Ég fann hana ekki. Ég fann ekki hlýjuna.

Söknuðurinn var verri en nokkurn tíma. Ég reyndi að hrópa á hana, ég sló til hennar til að athuga hvort hún finndi ekki fyrir mér. Ekkert.
Í öskraði í örvæntingu. Fannst brjóstið rifna. Myndi ég aldrei aftur finna hlýju? Skyndilega var mér kalt. Ég var tóm og ein. Ég grét, en það runnu engin tár.
Ég fylgdist með mömmu taka upp símann þegar hann hringdi, hún var róleg, eins og hún vissi hverjar fréttirnar voru sem henni voru færðar. Hún þagði og lagði hljóðlega frá sér símann.
Mig langaði ekkert meira en að strjúka tárin hennar burt, taka utan um hana og segja henni allt sem ég átti eftir.

En ég átti ekkert eftir. Það var búið. Lífið var búið. Þetta var endirinn, minn endir.
En þetta var aðeins byrjunin á öðru lífi. Öðruvísi lífi.

Dauðinn er aðeins ferðalag.

Tuesday, October 10, 2006

minningar..-

Er að spjalla við Gunnsuna mína í Sjíkagó og feta mig ósköp varlega niður stíg minninganna, hrædd við það sem ég rekst á. Sumt gleður mig, annað grætir mig.

Minningar eru skondnar, þær eru ekki bara handahófskenndar myndir sem renna í gegnum hugann, heldur fylgir þeim oftar en ekki tilfinning, sem getur komið fram sem fiðrildi í maganum, ógleði eða hreinlega stingandi hausverkur.
Ég upplifi yfirleitt sitt lítið af hverju..

Til dæmis gaman að rifja upp gömul kynni við hitt kynið, hvort sem það eru skyndikynni eða langtímakynni. Þau vekja yfirleitt hjá mér góða tilfinningu, og draga fram brosið. Svo sit ég eins og asni inn á kaffihúsi, með bjánalegt glott á vörunum. Stíll yfir því.

Svo rifjast upp fyrir mér endalokin, hvort sem það endaði með tárum og hurðaskellum eða endaði hreinlega nafnlaust án nokkurra tilfinninga eða annarra ummerkja en á rúmfötunum. Veit ekki hvort er verra.. en því fylgja engin fiðrildi.

Myndir hafa líka mikil áhrif á mig, sem og tónlist.
Það er til dæmis lag sem var spilað í jarðarförinni hennar Lilju sem ég get ekki hlustað á í dag án þess að brotna niður. En svo er aftur á móti lag sem við hlustuðum mikið á, sungum hástöfum með í jöstíinum hennar Hafdísar, sem kveikir á litlu fiðrildunum í maganum. Og yfirleitt get ég ekki varist brosi og fæ kjánahroll niður í tær þegar ég huxa um það þegar við tókum þátt í söngvakeppninni, klæddar í hvítt, með dansara. Jeminn.

Ég á ennþá bágt með að drekka appelsín. Þegar ég finn lyktina af appelsíni, kúgast ég. Samstundis fer mig að svima og ég finn lykt af úldnum fiski. Kannski er það afþví að þegar ég fór minn fyrsta túr á frystitogara, varði hann í fimm vikur og ég drakk ekkert nema appelsín.. þ.e.a.s eftir að mjólkin rann út.
Kannski er það afþví að við komumst seinna að þvi að dælan var biluð, og ég drakk "óhreint" appelsín í fimm vikur? Ég veit það ekki.. en ég er ekki aðdáandi.

Þegar ég keyri framhjá slippnum á Akureyri, huxa ég um úrið hans afa. Þá fæ ég kökk í hálsinn og fer að huxa um sveitina og öll Uppsalamótin sem verða ekki, því það er enginn til að bera ættina lengur, afi er ekki höfuð fjölskyldunnar lengur. Enginn til að kíkja í kaffi til, þegar mann langar ekki til að tala, en langar ekki að vera einn. Stundum fór ég til afa, fékk smá birtu í pepsíið mitt, og ræddi við hann um draumana mína. Alltaf sagði hann það sama: láttu þá rætast. Stundum fór ég til afa til að leggjast í gamla sófann, hlusta á dánarfregnir á rás tvö og huxa um ömmu. Stundum fór ég til afa bara til að afþakka pepsí, súkkulaði eða slátur, horfa á hann drekka kaffi í lítravís og reykja pakka af kamel filterslausum, og horfa á hann tyggja. Enginn tyggur eins og afi. Það var helmingur ánægjunnar af að fara í mat á Uppsalir.

Á úrinu hans afa var slippsmerkið. Og vísarnir voru skip sem snerust. Hann var alltaf með það, og þess vegna finnst mér gaman að keyra framhjá slippnum á akureyri.

Minningar.. ohh, sætu sætu minningar. Ég ætla að halda áfram að búa til minningar, njóta nostalgíunnar sem kemur stundum upp í mér, og láta það eftir mér að sakna. Stundum sakna ég tilfinningar, en ekki persóna. Sakna gleðinnar, þegar mamma keypti handa mér ný föt fyrir sautjánda júní og gaf mér rellu og candyfloss og leyfði mér að vaka frameftir á jólunum. Þegar ég eignaðist fyrstu hjólaskautana mína sem voru gulir og bleikir, og þegar ég eignaðist fyrsta hjólið mitt, sem ég mátti velja alveg sjálf. Ég valdi BMX hjól mömmu til mikillar armæðu, en ég elskaði það!

Ég man líka tregann þegar ég glataði sippubandinu mínu, skelfinguna þegar Hulda systir datt úr rólunni og rotaðist, spenninginn þegar ég og fyrsta "ástin" bökuðum kanelsnúða heima hjá honum, ég man líka augnablikið þegar ég áttaði mig á því að ekki er allt gefið, eða sjálfsagt. Að ástvinir geta verið hrifsaðir frá okkur, þegar síst varir, ástin getur dáið eða dofnað og skilið okkur eftir sár og tóm.

Æji, ég veit ekki hvert ég er að fara með þetta.. það hellast yfir mig svo margar minningar nuna, samhengislausar. Gamlar og nýjar. Góðar og slæmar. En það merkilega við þetta er, að ég held alveg jafn mikið upp á þær slæmu.. því það eru þær sem hafa kennt mér mest.

Ef ég væri einhver önnur, hver væri ég þá?

Monday, August 21, 2006

Streetmaker 3000..-

Það var afskaplega mikil sól þennan dag, svo mikil að mig hálfverkjaði í augun þegar ég dró frá gluggunum. Ég ákvað í hálfkæringi að eyða fyrri parti dags nakin, þar sem ég var ein heima og strípihneigðin farin að segja til sín. Ég settist út á pall og hneigði höfuðið í átt til nágrannana sem störðu á mig í því sem ég get aðeins ímyndað mér að hafi verið hneykslun. Mér var sama, ég var nakin og ég var ein í heiminum- mínum heimi. Hann er alltaf fullur af sólskini og laus við öll vandamál. Hann er fullur af bleikum kokteilum og marglitum rörum, frábærri tónlist og hýrum salsadansandi karlmönnum.

Ég kveikti á græjunum og hækkaði í botn. Ég tók upp gítarinn og ímyndaði mér að ég sæti fyrir framan fullan sal af fólki og þau dáðu mig öll með tölu. Ekki þurrt sæti í húsinu. Ég söng lika, og ekki eina feilnótu heldur. Þessi dagur var snilld. Í mínum heimi eru ártöl afstæð, eins og tíminn og ástin.

Eftir að hafa setið stutta stund í garðinum og leyft vindinum Jóni að leika um heitan líkamann birtist mér maður. Hann var klæddur í brúnan kyrtil, með hár niður á axlir og í úr sér gengnum sandölum. Hann kynnti sig sem Móse. Með honum var maður sem mér þótti í meira lagi áhugaverður. Hann leit út fyrir að vera algjörlega aldurslaus, með sítt hvítt hár sem hékk niður á bak og skegg sem náði niður á brjóstkassa. Hann var í ljósbláum ökklasíðum kyrtli, sem þó virtist breyta um lit eftir því í hvaða átt vindurinn blés. Stundum var hann grænn, stundum blár, stundum varð hann nærri því gulur. Hann var líka með háan uppmjóan hatt á hausnum, í sama lit og kyrtillinn. Hann hélt dauðahaldi í staf, ef staf má kalla, sem leit út fyrir að hafa verið rifinn af dauðu tré. Móse kynnti hann sem Merlin.

Þeir tylltu sér sínu hvoru megin við mig og virtust ekkert kippa sér upp við það að ég væri nakin. Þeir virtust ekki einu sinni taka eftir því. Móse hallaði sér aftur og teygði sig í bakka, fullan af háum glösum fullum af bleikum vökva, með marglitum rörum í. Þeir freyddu og mér fannst þeir hvísla nafnið mitt hljóðlega.
Ég tók mér glas í hönd, sem og þeir, og beið. Ég vissi ekki hvað þeir vildu, eða til hvers þeir höfðu komið svo ég brá á það ráð að þegja og leyfa þeim að eiga fyrsta orðið.

Eftir að hafa innbyrgt þriðja glasið af þessum seiðandi drykk, hallaði Merlin sér að mér og tjáði mér það að þeir kæmu færandi hendi. Þeir hefðu leitað lengi lengi, að réttum stað og réttri manneskju og fundið Ísland og svo fundið mig. Ég var að sjálfsögðu upp með mér og brosti mínu breiðasta. Eftir á að hyggja er ég ekki viss um að ég hafi brosað af spenningi, ég held ég hafi verið orðin drukkin af bleika, freyðandi drykknum með marglitu rörunum.
Þeir sögðust ætla að leggja undir sig heiminn og væru með allt til þess, nema staðinn. Staðurinn væri ekki svo langt frá þar sem ég ætti heima og það eina sem þyrfti að gera væri að leggja þangað veg, til að koma þangað öllu sem þeir þyrftu. En þar sem að þeir væru löngu dánir, þyrftu þeir dauðlega manneskju til þess arna.
Ég spurði þá að sjálfsögðu afhverju Merlin, mesti galdramaður sögunnar, myndi ekki bara galdra fram veg, og þeir svöruðu mér því að þetta þyrfti að vera gert af höndum manneskju svo seiðurinn myndi ekki fara úrskeiðis. Ég tók þetta gott og gilt, og bað um annað glas af drykknum góða.

Afhverju Ísland, spurði ég. Þeir sögðu mér að á Íslandi væri að finna eina mestu orkustöð heims og þeir þyrftu þessa orku með í þennan mikla seið, þeir tjáðu mér það líka að þeir væru búnir að vera að undirbúa sig í hundruði ára.
Ég benti þeim á að þeir hefðu nú ekki einu sinni verið uppi á sama tíma. Fannst ég vera að gera mikla uppgötvun. Móse sagði mér að í andaheiminum væri tíminn afstæður, eins og ástin. Þar liðu ár, sem mínútur. Hann sagðist aðeins hafa lagt sig, fengið sér blund og þegar hann hafði vaknað hafði Merlin beðið hans. Það þótti mér skemmtileg tilhugsun. Þá verðum við varla einmana þarna hinum megin, sagði ég. Við náum varla að sakna ástvina okkar áður en við erum sameinuð á ný.

Enn og aftur teygði Móse sig aftur á bak, og ég fékk fiðring í naktan kroppinn og hélt að hann væri að ná í fleiri drykki, en þá birtist hann með tæki sem leit út eins og ryksuga. Grátt með bláum röndum og gulllituðum stjörnum, á hliðinni stóð Streetmaker 3000. Ég skoðaði það með öðru auganu á meðan ég teygði mig í enn einn drykkinn. Þeir sögðust þurfa á mér að halda til að leggja veg að staðnum þar sem athöfnin átti að fara fram. Ég sagði að það yrði nú ekki mikið mál. Þegar þeir þögðu bara og horfðu á mig, með ryksuguna í fanginu skildist mér að ég mætti víst ekki mikinn tíma missa. Svo ég stóð á fætur og leyfði þeim að festa tækið á bakið á mér. Þeir sýndu mér snögglega hvernig það virkaði og sendu mig svo af stað, með aðeins einn bleikan, freyðandi drykk í nesti.

Ég leit tilbaka áður en þeir voru komnir í hvarf og gat ekki annað en huxað með mér að Móse hefði haft gott af því að hafa þessa töfravél í den tiden, það hefði huxanlega stytt 40 ára dvöl hans í eyðimörkinni heilmikið.

Blindfull og blinduð af öllum tímanum í sólinni hélt ég upp á heiði. Nakin með ryksugu fasta á bakinu hófst ég handa við að leggja veg fyrir þessa miklu menn, sem vildu leggja undir sig heiminn.
Við gerðum bara því miður ekki ráð fyrir áfengisþoli mínu, svo vegurinn varð ekki alveg beinn hjá mér og ég er ansi hrædd um að ég hafi farið óravegu frá þessum mikla seiðstað, þar sem athöfnin átti að eiga sér stað. Þegar ég kom svo heim nokkrum vikum seinna, beið mín bréf þar sem þeir þökkuðu mér þó fyrir viðleitnina og fyrir að hafa reynt, en þeir fengju aðeins leyfi til að stíga fæti á jörðina einu sinni á þúsund ára fresti. En better luck next time..-

Lítum á björtu hliðarnar, ég fékk alveg heilmikinn lit á kroppinn og lagði veg yfir Lágheiðina, alveg blindfull og kjagandi.

Það getur ekki hver sem er sagt það.

Friday, July 28, 2006

Ef Dauðinn væri maður..-

Furðuleg tilfinning bjó um sig neðst í maganum á mér. Hjartað í mér hamaðist eins og ég hefði nýlokið daglega hlaupinu mínu og mér var hálf óglatt. Mér fannst sífellt eins og einhver veitti mér eftirför, sem þó var afskaplega ólíklegt þar sem að ég var á enn einni næturvaktinni og við mæðgurnar settar á vakt saman, og ég leyfði mér að efast um að móðir mín sæi ástæðu til að elta mig eins og hundur útum allt hús og fela sig þess á milli.

Gæsahúðina aftan á hálsinum skrifaði ég á gegnumtrekk. Þrátt fyrir að júlímánuður væri enn ekki liðinn var nær aldimmt úti og lægðin yfir landinu hélt veðrinu kyrru en svölu. Ég var niðursokkin í að strauja sængurföt niðrí þvottahúsi og söngla með sjálfri mér þegar mamma bað mig um að þegja, mér þótti það nú svo sem ekkert óeðlilegt þar sem að hún biður mig iðulega um það þegar ég byrja að rymja óþekkjanleg lög, hún hallaði undir flatt og spurði mig hvort ég hefði ekki heyrt eitthvað, ég svaraði nú eins og var að það heyrðist ekki neitt. Ég hélt áfram og eftir augnablik gerði mamma það líka. Það liðu varla meira en tvær mínútur áður en hún sperrti sig aftur og hélt því fram að hún heyrði eitthvað, kannski bank? Hún ákvað að athuga málið og sagðist koma strax aftur. Ekki nennti ég að fara að eyða nóttinni í að elta ímynduð hljóð á heimili þar sem búa tæplega fjörtíu manns, svo ég brosti bara annarshugar og hélt starfi mínu áfram í þvottahúsinu.

Þegar að liðnar voru rúmar tuttugu mínútur og mamma hafði hvorki skilað sér né látið í sér heyra ákvað ég að athuga með hana. Ég rölti fram og skimaði í kringum mig. Það var algjör þögn yfir húsinu, vissulega væri það gott á hvaða heimili sem væri, en á dvalarheimili þar sem búa þetta margir er það óðelilegt ef ekki heyrast hljóð, venjuleg heimilishljóð. Fyrir endann á ganginum niðri blöktu gluggatjöldin. Fjandinn, ég var alveg handviss um að ég hefði læst hurðinni fyrr um kvöldið. Svo ég gekk inn myrkan ganginn og lokaði hurðinni. Setti hana í lás, í það sem ég var viss um að væri í annað skiptið þá nóttina. Þegar ég sneri mér við sá ég skugga hverfa inn í hjúkrunarherbergið á hægri hönd. Hjartað sló örlítið hraðar, en allt kvöldið var búið að vera svo furðulegt að ég hristi bara höfuðið yfir þessu og ýtti hálfopinni hurðinni inn í herbergið upp á gátt. Átti nú von á því að sjá mömmu sitja þar glottandi, en herbergið var tómt. Vegna flutninga voru ekki einu sinni húsgögn þar inni, og ekki var mikið um húsgögn á ganginum heldur svo það sem var dularfullt við þetta var hvaðan skugginn hafði komið. Ég hraðaði mér tilbaka og inn í þvottahús aftur, kannski hafði mamma komið aftur og væri ósköp róleg að brjóta saman handklæðin sem við áttum eftir.

Þegar ég opnaði þvottahúsið var búið að kveikja á útvarpinu, ég gat þó allavega andað léttar. Mamma var líklega komin í leitirnir og óþarfi að verða hrædd. Þegar ég leit inn sá ég að þvottahúsið var mannlaust, en einhver hafði raðað öllum handklæðunum á gólfið í snyrtilega röð. Vandlega, horn i horn. Í miðjunni hafði þvottapokunum verið staflað. En engin skóför á handklæðunum eða þau hreyfð á nokkurn hátt, þau litu meira út fyrir að hafa verið straujuð á gólfinu.
Mér hætti að standa á sama.

Ég hálfhljóp upp tröppurnar. Leit inn báða gangana uppi, það heyrðist ekki hljóð en báðar hurðirnar, í hvorum enda, stóðu upp á gátt. Þá fór lyftan af stað. Ég gekk hikandi af stað og staðnæmdist fyrir framan hana. Ákvað að mamma hefði farið niður til að hrekkja mig, og svo tekið lyftuna upp. Lyftan opnaðist en enginn í henni. Þegar hún lokaðist aftur fann ég kaldan gust leika um andlitið á mér, og fannst ég finna hendi strokið um ennið á mér. Ég bakkaði frá lyftunni og stefndi að matsalnum, sem var alveg myrkur. Ég hafði þó skilið eftir ljós í honum, ég teygði mig í slökkvarann, ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að ganga inn í hann á meðan ljósin voru slökkt. Ég leit útum gluggann og sá að bíllinn var ennþá fyrir utan, svo mamma hafði ekki stungið mig af. Ég vissi ekki hvort það gladdi mig eða ekki.

Lyftan gekk upp og niður í nokkrar mínútur en staðnæmdist svo uppi. Það leið smástund áður en dyrnar opnuðust aftur. Ég sá ekki beint inn í lyftuna, en ég sá skugga manneskju frá henni. Einhver stóð inní lyftunni, hreyfingarlaus.
Ég settist niður, á kalt gólfið. Tók um hnén á mér og velti því fyrir mér hvort ég ætti að reyna að komast út og út í bíl, ég gæti kannski hringt í einhvern?

Skugginn bærði á sér. Ég fann hvernig svitinn rann niður bakið á mér og ég get sagt ykkur það að ég hef aldrei á minni stuttu ævi verið jafn skelfingu lostin og þessa sekúndu sem leið þar til mamma steig útúr lyftunni. Ég stökk á fætur og tárin runnu niður vangana af einskærum feginleik.

Hún var alveg stjörf. Kaldsveitt og þvöl. Hendur hennar skulfu og augun voru mött. Hún gekk beint áfram, án þess að líta til hægri eða vinstri. Þegar ég greip í hana sneri hún sér hægt að mér og í henni heyrðist hryglukennt hljóð sem ég ímynda mér að heyrist í fólki sem er að yfirgefa þennan heim fyrir annan. Hún horfði beint á mig en sá mig ekki. Ég leiddi hana að næsta stól við lyftuna og reyndi að fá hana til að tala við mig. Hún starði bara fram fyrir sig og reri fram og aftur. Ég var staðin upp og ætlaði að draga hana með mér inn á vaktherbergi og hringja á hjálp, þegar henni varð skyndilega litið á mig og litur færðist í vangana.

"Alfa mín, hvernig varstu svona fljót upp? Þú sagðir mér að taka lyftuna.."

Monday, July 10, 2006

Nótt..-

Ég man enn daginn eins og í gær..

Ég heyrði skarkalann frammi, en það var ennþá myrkt inni í herberginu sem ég var í og ég áttaði mig ekki á því hvað tímanum leið. Vissi ekki hvort það væri nótt eða dagur. Ég skreiddist frammúr, dragúldin og kramin í framan. Ég fann ekki gleraugun mín og fékk strax gamalkunnan sting í magann. Ég hafði verið að drekka kvöldið áður, og það hafði komið oftar fyrir en þrisvar að ég týndi gleraugunum mínum. Þetta myndi á endanum setja mig á hausinn. Ekki fann ég símann minn heldur, eða nærfötin. Ég klæddi mig í það sem ég fann og dró frá glugganum. Hvar í fjandanum var ég?! Kannaðist ekki við það sem ég sá. Djöfulsins skíta helvíti! Ekki enn einu sinni..

Ég varð bara að vona ég kannaðist við húsráðanda. Ég gekk hikandi fram, ömurleg óperutónlist ómaði um húsið og var að gera mig vitlausa. Hver spilar óperu klukkan.. ég skimaði eftir klukku.. hálf þrjú! Ennþá meira skíta helvíti! Skyndilega heyrði ég kveikt á ryksugu í næsta herbergi og ég hrökk við. Læddist tilbaka og forðaði mér inn á það sem ég reiknaði með að væri baðherbergi.

Barnaherbergi! Djöfull djöfull djöfull.

Ég beit í hnúana og barðist við tárin. Ég tyllti mér á andlitið á Barbie, þ.e. lítinn bleikan plaststól sem í heyrðust skringileg hljóð þegar ég settist. Ég lokaði augunum og reyndi að huxa aftur á bak.. hvar hafði ég verið og með hverjum?
Ég mundi eftir því að stelpurnar stungu mig af snemma og skildu allt áfengið sitt eftir, sem ég hafði drukkið. Hvað svo..?

Það slökknaði á ryksugunni. Ég leit upp og skimaði í kringum mig í ofboði. Ég hljóp að glugganum í barnaherberginu og íhugaði að stökkva út. En ákvað að ég yrði að reyna að finna gleraugun mín og símann.
Dauðaþögn. Helvítis óperuóbjóðurinn var loksins þagnaður.

Ég safnaði í mig kjarki og gekk fram. Heyrði hljóð innan úr eldhúsi, var manneskjan þrifóð?! Að vaska upp og ryksuga á sunnudegi. Mér veitti ekki af einum ísköldum öl, hefði verið sama þó hann hefði verið volgur. Ég hikaði augnablik áður en ég gekk fyrir hornið og inn í eldhús.

Afi hennar Beggu! Vá hvað mér létti! Ég grét nánast af feginleik. Ég var búin að hitta hann nánast upp á dag í fleiri mánuði. Heima hjá Beggu. Ég hló móðursýkislega og hann sneri sér við. Hann brosti sínu blíða brosi sem vakti alltaf hjá mér öryggistilfinningu. Hann tók af sér uppvöskunarhanskana og gekk til mín og á hann kom svipur sem ég ákvað að þýddi að ég þyrfti að huxa mitt ráð og hætta að drekka.
Hann vafði mig örmum og ég fann hvernig ég slakaði á. Skyndilega þrýsti hann vörunum að mínum og tróð tungunni ofan í kok á mér. Ég reyndi að öskra en hann hélt svo fast utan um mig að ég kom ekki upp hljóði, né gat hreyft legg né lið. Þegar hann sleppti mér brosti hann, ég sneri mér við og kastaði upp á gólfið og yfir sjálfa mig.
Ljótar svipmyndir skutust örstutt upp í hugann en stöldruðu ekki nógu lengi við til að ég festi reiður á þeim, en þó nógu lengi til að vekja hjá mér óhug. Mér féllust hendur og ég lét mig síga á gólfið. Settist í mína eigin ælu. Starði fram fyrir mig.
Afi hennar Beggu hóf mig á fætur, tók mig í fangið og bar mig að baðherberginu sem ég hafði leitað fyrr. Þar kveikti hann á sturtunni og setti mig í baðkarið. Án þess að segja orð byrjaði hann að afklæða mig.

Ég streittist á móti en hann var sterkari. Hann tjáði mér það að ég hefði nú ekki mótmælt nóttina áður, ég hefði reyndar átt frumkvæðið. Svo hélt hann áfram að klæða mig úr buxunum. Ég lokaði augunum, tárin runnu hljóðlega niður kinnarnar og ég lét undan.

Djöfull, og ég sem var að fara í tíundarbekkjarferðalagið daginn eftir!