Friday, December 21, 2007

pakkar..

Vitiði hvað er leiðinlegt við að vaka til þrjú við að pakka inn gjöfum?

... það er að þurfa að pakka þeim inn tvisvar vegna þess að kisinn þinn rífur þá alltaf upp.

En tilfinningin sem fylgir því að vera búin að öllu fyrir jólin er yndisleg! Að finna loksins tíma til að eyða með makanum er ómetanlegt. Það er nefnilega ekkert gaman að sakna manneskjunnar sem þú býrð með! Ætla sko ekki að sakna neitt um jólin!

Nú er föstudagur. Það er helgi. Á mánudaginn, eftir helgi, koma jólin.

En spennandi.

2 comments:

Sunna said...

"Oooooog jólabloggari ársins eeeeeer..... ALFA !!!" :-D

Anonymous said...

mmmm... ég held bara Alfa að þú hafir hnikt mér í jólagírinn þetta árið ... þetta og síðasta blogg er æðislegt:)

jólaknús á þig sæta mín ...