Wednesday, October 24, 2007

Bumba.

Ég mun aldrei stofna barnalandssíðu, en það er bara afþví að ég ber í brjósti personal grudge til Barnalands. Í staðinn ætla ég að skella einni bumbumynd hingað inn.



Glöggir sjá að Kormákur er á leið ofan í baðið til okkar. Hann er nefnilega ekkert hrifinn af þessum litla púka sem er að vaxa inní mér. Ræðst á mig uppúr þurru og hvæsir. Elska'nn samt. Þeir sem eru ekki aðeins glöggir heldur einnig afar klárir sjá líka að ég er butt naked on a zebra.

Þarna er ég komin 15 vikur.

7 comments:

Anonymous said...

geggjuð mynd... Alfa bumbulína.

Ég er að segja þér það að það er vidjógláp og slappafelsi með þér eftir próf!

Anonymous said...

Nåh, það munar ekkert um það. Maður er vanur svona "standandi á hlið með peysuna upp" myndum ;o) Þetta er miklu skemmtilegra!! Hlakka til að hitta þig um jólin, er eiginlega alveg búin að ákveða að sökum tímaleysis þá ætla ég að gera jóladagsstoppið mitt hjá þér lengra þetta árið, hljómar það ekki bara ágætlega?

Anonymous said...

You sexy pregnant one :) Þetta er alveg hreint gullfalleg mynd af ykkur púkanum (...og Kormáki að sjálfsögðu) Hafðu það nú gott dúllan mín, get ekki beðið eftir að hitta þig þegar ég kem heim í nóv!!!! LOVE

Anonymous said...

Viltu vera dugleg að setja inn bumbumyndir og segja hvað er að gerast! Mér finnst svo yndislegt að geta fylgst svona með því!:) Elskaþig ..

Tryggvi said...

Til hamingju með bumbuna!

Þetta er íðilfögur mynd. Það er eins og áður, Alfa gerir það með stæl.

Reyndar verð ég að segja að ég er varla kominn úr sjokkinu að þú sért ófrísk. Ég hefði frekar átt von á að ganga með barn sjálfur á þessum tímapunkti.

Gangi ykkur sem best elskan.

Sunna said...

hot damn.... ;-)

Anonymous said...

Hæ sæta,

Hlakka til að sjá þig "live"

Gangi þér vel :)

Kv, Helga